FRÉTT VERÐLAG 19. DESEMBER 2024

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2024, er 637,2 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,39% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 511,7 stig og hækkar um 0,37% frá nóvember 2024.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,5% (áhrif á vísitöluna 0,09%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 8,0% (0,14%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,8% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,8%.

Ársmeðaltal vísitölu neysluverðs árið 2024 var 627,5 stig, 5,9% hærra en meðalvísitala ársins 2023. Samsvarandi breyting var 8,8% árið 2023 og 8,3% 2022.

Ársmeðaltal vísitölu neysluverðs án húsnæðis árið 2023 var 507,8 stig, 3,8% hærra en meðalvísitala ársins 2023. Samsvarandi breyting var 7,8% árið 2023 og 6,1% 2022.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2024, sem er 637,2 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2025.





Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.