Markaðsverð á húsnæði hækkaði um 2,8% (vísitöluáhrif 0,38%), viðhaldskostnaður húsnæðis hækkaði um 2,5% (0,09%) og verð á rafmagni hækkaði um 4,2% (0,07%).
Vetrarútsölur eru enn í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 4,9% (-0,25%). Verð á mat og drykkjarvöru lækkaði um 0,7% (-0,11%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% sem jafngildir 3,1% verðbólgu á ári (2,1% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs í febrúar 2005, sem er 239,7 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.733 stig fyrir mars 2005.