FRÉTT VERÐLAG 12. FEBRÚAR 2007

Vísitala neysluverðs í febrúar 2007 er 268,0 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,41% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 245,3 stig, óbreytt frá janúar.

Áhrifa vetrarútsalna gætir enn og lækkaði verð á fötum og skóm um 4,1% af þeim sökum (vísitöluáhrif -0,17%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 1,8% (0,41%), þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,27%, 0,06% af hækkun vaxta og 0,08% vegna hækkunar á viðhaldsliðnum.
Verð á mat og drykkjarvörum var nánast óbreytt milli mánaða, hækkaði um 0,2% (0,02%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 7,4% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,2%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,7% sem jafngildir 2,9% verðbólgu á ári (0,5% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í febrúar 2007, sem er 268,0 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2007. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.292 stig fyrir mars 2007.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2006–2007
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2006
Janúar 249,7 0,3 3,9 2,1 5,9 4,4
Febrúar 249,5 -0,1 -1,0 2,4 5,2 4,1
Mars 252,3 1,1 14,3 5,6 4,4 4,5
Apríl 255,2 1,1 14,7 9,1 5,5 5,5
Maí 258,9 1,4 18,9 15,9 9,0 7,6
Júní 261,9 1,2 14,8 16,1 10,7 8,0
Júlí 263,1 0,5 5,6 13,0 11,0 8,4
Ágúst 264,0 0,3 4,2 8,1 12,0 8,6
September 265,6 0,6 7,5 5,8 10,8 7,6
Október 266,2 0,2 2,7 4,8 8,8 7,2
Nóvember 266,1 0,0 -0,4 3,2 5,6 7,3
Desember 266,2 0,0 0,5 0,9 3,3 7,0
2007
Janúar 266,9 0,3 3,2 1,1 2,9 6,9
Febrúar 268,0 0,4 5,1 2,9 3,1 7,4

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2007
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
  Áhrif á vísit.
  Janúar Febrúar %
Vísitala neysluverðs 149,5 150,1 7,4% 7,4%
Þar af:    
Innlendar vörur 138,3 138,4 6,9% 1,0%
Búvörur og grænmeti 134,8 133,8 6,1% 0,4%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 140,4 141,3 7,5% 0,6%
Innfluttar vörur alls 118,9 118,0 6,7% 2,2%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  114,7 113,7 7,0% 2,1%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 151,0 152,0 7,9% 6,9%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 151,5 152,5 8,3% 6,6%
Dagvara 132,6 132,9 8,4% 1,3%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.