FRÉTT VERÐLAG 24. FEBRÚAR 2011

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í febrúar er 367,7 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,18% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 350,1 stig og hækkaði um 1,16% frá janúar.

Vetrarútsölum er að ljúka og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,5% (vísitöluáhrif 0,33%) og verð á húsgögnum, heimilisbúnaði o.fl. um 2,5% (0,16%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,7% (0,20%), aðallega vegna hærra markaðsverðs. Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 0,8% (0,13%), fargjöld í utanlandsflugi um 15,1% (0,12%) og verð á bensíni og olíum hækkaði um 1,8% (0,10%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,2%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,6% sem jafngildir 2,4% verðbólgu á ári (einnig 2,4% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).


Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar 2011, sem er 367,7 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2011. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.260 stig fyrir apríl 2011.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2010-2011
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Janúar Febrúar %
Vísitala neysluverðs 203,6 206,0 1,9 1,9
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 182,7 184,2 2,9 0,4
Búvörur og grænmeti 168,0 170,5 3,6 0,2
Innlendar vörur án búvöru 194,3 194,8 2,3 0,2
Innfluttar vörur alls 183,2 185,9 0,5 0,2
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  176,0 178,9 0,2 0,1
Dagvara 185,1 186,3 1,1 0,2

Breytingar vísitölu neysluverðs 2010–2011
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2010
Febrúar 360,9 1,1 14,7 5,4 8,2 7,3
Mars 362,9 0,6 6,9 5,7 7,8 8,5
Apríl 363,8 0,2 3,0 8,1 5,9 8,3
Maí 365,3 0,4 5,1 5,0 5,2 7,5
Júní 364,1 -0,3 -3,9 1,3 3,5 5,7
Júlí 361,7 -0,7 -7,6 -2,3 2,8 4,8
Ágúst 362,6 0,2 3,0 -2,9 0,9 4,5
September 362,6 0,0 0,0 -1,6 -0,2 3,7
Október 365,3 0,7 9,3 4,0 0,8 3,3
Nóvember 365,5 0,1 0,7 3,2 0,1 2,6
Desember 366,7 0,3 4,0 4,6 1,4 2,5
2011
Janúar 363,4 -0,9 -10,3 -2,1 0,9 1,8
Febrúar 367,7 1,2 15,2 2,4 2,8 1,9

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.