FRÉTT VERÐLAG 27. FEBRÚAR 2019

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í febrúar 2019 er 462,9 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,19% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 394,9 stig og hækkar um 0,15% frá janúar 2019.

Verð á húsgögnum og heimilisbúnaði hækkaði um 5,4% (áhrif á vísitöluna 0,20%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 11,1% (-0,14%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,0% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 2,1%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar 2019, sem er 462,9 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2019. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.140 stig fyrir apríl 2019.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2018-2019
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala Breytingar í
hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu12 mánuði, %
2018
Febrúar449,50,67,53,22,52,3
Mars452,00,66,94,43,42,8
Apríl452,20,00,54,92,52,3
Maí451,8-0,1-1,12,12,62,0
Júní454,60,67,72,33,32,6
Júlí454,80,00,52,33,62,7
Ágúst455,70,22,43,52,82,6
September456,80,22,91,92,12,7
Október459,40,67,04,13,22,8
Nóvember460,50,22,94,33,93,3
Desember463,90,79,26,44,13,7
2019
Janúar462,0-0,4-4,82,33,23,4
Febrúar462,90,22,42,13,23,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.