FRÉTT VERÐLAG 27. FEBRÚAR 2020

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í febrúar 2020, er 474,1 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,92% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 404,3 stig og hækkar um 0,95% frá janúar 2020.

Vetrarútsölur eru víða gengnar til baka og hækkaði verð á fötum og skóm um 6,4% (áhrif á vísitöluna 0,25%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,7% (0,12%). Verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 8,8% (0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,4% og vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur sömuleiðis hækkað um 2,4%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar 2020, sem er 474,1 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2020. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.361 stig fyrir apríl 2020.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2019-2020
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala Breytingar í
hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu12 mánuði, %
2019
Febrúar462,90,22,42,13,23,0
Mars465,30,56,41,23,82,9
Apríl467,00,44,54,43,33,3
Maí468,00,22,64,53,33,6
Júní469,80,44,73,92,63,3
Júlí468,8-0,2-2,51,63,03,1
Ágúst470,10,33,41,83,13,2
September470,50,11,00,62,23,0
Október472,20,44,42,92,22,8
Nóvember472,80,11,52,32,12,7
Desember473,30,11,32,41,52,0
2020
Janúar469,8-0,7-8,5-2,00,41,7
Febrúar474,10,911,61,11,72,4

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.