FRÉTT VERÐLAG 27. FEBRÚAR 2023

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í febrúar 2023, er 577,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 1,39% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 479,4 stig og hækkar um 1,81% frá janúar 2023.

Verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 1,9% (áhrif á vísitöluna 0,30%), verð á fötum og skóm hækkaði um 6,8% (0,21%) og verð á húsgögnum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 8,7% (0,53%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 10,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 8,9%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar 2023, sem er 577,3 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2023. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 11.399 stig fyrir apríl 2023.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.