FRÉTT VERÐLAG 28. FEBRÚAR 2024

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í febrúar 2024, er 615,4 stig (maí 1988=100) og hækkar um 1,33% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 502,0 stig og hækkar um 1,33% frá janúar 2024.

Vetrarútsölur eru víða gengnar til baka og hækkaði verð á fötum og skóm um 8,4% (áhrif á vísitöluna 0,30%) og verð á húsgögnum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 5,5% (0,31%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,7% (0,13%) og annað vegna húsnæðis (sorphreinsun, holræsi og kalt vatn) hækkaði um 11% (0,18%). Einnig hækkaði verð á mat- og drykkjarvörum um 0,7% (áhrif á vísitöluna 0,10%).

Í stað þess að taka inn verðbreytingar á "044 Annað vegna húsnæðis" í janúar þá var það gert nú í febrúar þegar fyrsta greiðsla skv. nýjum gjaldskrám fer yfirleitt fram.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,6% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,7%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar 2024, sem er 615,4 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2024.





Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.