Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í febrúar 2025, er 641,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,91% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 515,6 stig og hækkar um 1,06% frá janúar 2025.
Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,1% (áhrif á vísitöluna 0,17%) og verð á húsgögnum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 5,6% (0,26%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,7%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar 2025, sem er 641,3 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2025.