Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í febrúar 2026, er 674,6 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,94% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 538,8 stig og hækkar um 1,09% frá janúar 2026.
Vetrarútsölur eru víða gengnar til baka og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,1% (áhrif á vísitöluna 0,17%) og verð á húsbúnaði, heimilistækjum o.fl. hækkaði um 5,4% (0,21%). Verð á mat og óáfengum drykkjum hækkaði um 0,9% (0,14%), gjöld vegna vatnsveitu, sorphirðu og fráveitu hækkuðu um 4,3% (0,07%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 6,8% (0,15%). Verð á dísel lækkaði um 5,6% (-0,05%) og verð á bensíni lækkaði um 6,0% (-0,11%).
Við sannprófun gagna fyrir febrúar kom í ljós að rangt eldsneytisverð var skráð hjá einum smásöluaðila í janúar. Lækkun á bensíni og dísel í febrúar er að miklu leyti vegna uppfærslu þessarar skráningar. Lækkun á dísel í janúar hefði átt að vera 28,1% (áhrif á vísitölu -0,30%) og lækkun á bensíni hefði átt að vera 31,5% (-0,78%). Leiðréttingin hefur ekki áhrif á birt gildi vísitölu neysluverðs í janúar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,5%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í febrúar 2026, sem er 674,6 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2026.