FRÉTT VERÐLAG 13. JANÚAR 2005

Vísitala neysluverðs í janúar 2005 er 239,2 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,08% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 229,2 stig, lækkaði um 0,56% frá því í desember.
       Vetrarútsölur eru nú í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10% (vísitöluáhrif -0,56%) og verð á húsgögnum, heimilisbúnaði og raftækjum lækkaði um 3,3% (-0,18%). Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 5,7% (-0,24%).
       Markaðsverð á húsnæði hækkaði um 2,9% (vísitöluáhrif 0,39%), gjaldskrár fyrir opinbera þjónustu hækkuðu um 4,4% (0,32%) og fyrir aðra þjónustu um 1,0% (0,22%).
       Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,0% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,8% sem jafngildir 3,1% verðbólgu á ári (1,0% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).
       Meðaltal vísitölu neysluverðs árið 2004 var 234,6 stig sem er 3,2% hærra en meðaltalið árið 2003. Sambærileg hækkun var 2,1% árið 2003 og 4,8% árið 2002.
       Vísitala neysluverðs án húsnæðis var að meðaltali 227,5 stig, 2,1% hærri en meðalvísitalan árið 2003. Sambærileg hækkun árið 2003 var 0,7% og 4,6% árið 2002.
       Vísitala neysluverðs í janúar 2005, sem er 239,2 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.723 stig fyrir febrúar 2005.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.