FRÉTT VERÐLAG 28. JANÚAR 2009

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar 2009 er 334,8 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,57% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 304,7 stig og hækkaði hún um 0,43% frá desember.

Vetrarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 8,2% (vísitöluáhrif -0,40%). Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 14,5% (-0,19%).

Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,8% (0,24%) og efni til viðhalds húsnæðis hækkaði um 3,5% (0,16%). Þá hækkaði verð á nýjum bílum um 1,7% (0,12%).

Fastskattavísitala neysluverðs hefur verið uppfærð á ný og er nú áfengis-, tóbaks- og olíugjaldi auk vörugjalda af bensíni haldið föstum eins og þau voru í nóvember 2008.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 18,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 21,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,9% sem jafngildir 16,4% verðbólgu á ári (17,1% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2009, sem er 334,8 stig gildir til verðtryggingar í mars 2009. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.611 stig fyrir mars 2009.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2009, sem er 334,8 stig gildir til verðtryggingar í mars 2009. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.611 stig fyrir mars 2009.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2008–2009
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2008
Janúar 282,3 0,2 2,2 6,2 6,9 5,8
Febrúar 286,2 1,4 17,9 9,3 9,8 6,8
Mars 290,4 1,5 19,1 12,8 10,1 8,7
Apríl 300,3 3,4 49,5 28,0 16,6 11,8
Maí 304,4 1,4 17,7 28,0 18,3 12,3
Júní 307,1 0,9 11,2 25,1 18,8 12,7
Júlí 310,0 0,9 11,9 13,6 20,6 13,6
Ágúst 312,8 0,9 11,4 11,5 19,5 14,5
September 315,5 0,9 10,9 11,4 18,0 14,0
Október 322,3 2,2 29,2 16,8 15,2 15,9
Nóvember 327,9 1,7 23,0 20,8 16,0 17,1
Desember 332,9 1,5 19,9 24,0 17,5 18,1
2009
Janúar 334,8 0,6 7,1 16,4 16,6 18,6

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2009
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Desember Janúar %
Vísitala neysluverðs 186,5 187,6 18,6 18,6
Þar af:    
Innlendar vörur 165,5 167,3 22,7 3,0
Búvörur og grænmeti 161,1 163,7 22,8 1,3
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 168,2 169,3 22,7 1,7
Innfluttar vörur alls 157,1 157,8 30,0 10,0
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  152,6 152,6 30,2 9,2
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 188,0 188,7 18,2 16,3
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 190,9 191,5 19,3 15,9
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 188,3 189,0 18,5 15,1
Dagvara 168,8 171,9 32,1 4,7

Talnaefni


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.