FRÉTT VERÐLAG 26. JANÚAR 2011

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar er 363,4 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,90% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 346,1 stig og lækkaði um 0,97% frá desember.

Vetrarútsölur leiddu til 10% verðlækkunar á fötum og skóm (vísitöluáhrif -0,66%) og 3,1% verðlækkunar á húsgögnum, heimilisbúnaði o.fl. (-0,21%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis minnkaði um 1,8% (-0,22%), aðallega vegna lægra markaðsverðs. Fargjöld í utanlandsflugi lækkuðu um 15% (-0,14%).

Nú er litið á útvarpsgjald sem beinan skatt í stað þjónustugjalds eins og greint var frá í minnisblaði 22. desember 2010. Breytingin hafði 0,41% áhrif til lækkunar á vísitölunni. Verð á annarri opinberri þjónustu hækkaði um 3,4% (0,25%).

Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,4% (0,21%) og verð á bensíni og olíum hækkaði um 3,1% (0,18%).

Áhrif hækkunar áfengis-, tóbaks-, olíu- og kolefnisgjalda á vísitölu neysluverðs voru 0,21%.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,5% sem jafngildir 2,1% verðhjöðnun á ári (1,8% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2011, sem er 363,4 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2011. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.175 stig fyrir mars 2011.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2010–2011
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2010
Janúar 356,8 -0,3 -3,6 3,7 6,9 6,6
Febrúar 360,9 1,1 14,7 5,4 8,2 7,3
Mars 362,9 0,6 6,9 5,7 7,8 8,5
Apríl 363,8 0,2 3,0 8,1 5,9 8,3
Maí 365,3 0,4 5,1 5,0 5,2 7,5
Júní 364,1 -0,3 -3,9 1,3 3,5 5,7
Júlí 361,7 -0,7 -7,6 -2,3 2,8 4,8
Ágúst 362,6 0,2 3,0 -2,9 0,9 4,5
September 362,6 0,0 0,0 -1,6 -0,2 3,7
Október 365,3 0,7 9,3 4,0 0,8 3,3
Nóvember 365,5 0,1 0,7 3,2 0,1 2,6
Desember 366,7 0,3 4,0 4,6 1,4 2,5
2011
Janúar 363,4 -0,9 -10,3 -2,1 0,9 1,8

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2010-2011
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Desember Janúar %
Vísitala neysluverðs 205,5 203,6 1,8 1,8
Þar af:
Innlendar vörur og grænmeti 180,9 182,7 2,8 0,4
Búvörur og grænmeti 165,8 168,0 2,7 0,2
Innlendar vörur án búvöru 192,8 194,3 2,9 0,2
Innfluttar vörur alls 186,0 183,2 0,8 0,3
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  179,6 176,0 0,6 0,2
Dagvara 182,8 185,1 0,8 0,1

Talnaefni


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.