FRÉTT VERÐLAG 28. JANÚAR 2016

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar 2016 er 428,3 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,58% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 391,6 stig og lækkaði hún um 1,06% frá desember.

Vetrarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 13,0% (áhrif á vísitöluna -0,57%) og húsgögn og heimilisbúnaður lækkaði um 9,3% (-0,14%). Verð á bensíni og olíum lækkaði um 3,3% (-0,11%).

Kostnaður vegna húsnæðis, hita og rafmagns hækkaði um 0,8% (0,22%). Mestu munaði um hækkun kostnaðar vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð leiga) um 0,8% (0,13%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,1% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 0,6%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2016, sem er 428,3 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2016. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.457 stig fyrir mars 2016.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2016
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu 12 mánuði
     
        Áhrif á vísit.
  Desember Janúar %
         
Vísitala neysluverðs 241,4 239,9 2,1 2,1
Þar af:        
Innlendar vörur og grænmeti 220,4 220,8 1,4 0,2
Búvörur og grænmeti 207,7 208,3 1,4 0,1
Innlendar vörur án búvöru 229,3 229,6 1,4 0,1
Innfluttar vörur alls 191,6 185,6 -1,4 -0,5
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  182,1 175,6 -1,7 -0,5
Dagvara 214,2 215,3 0,9 0,2
Breytingar vísitölu neysluverðs 2015-2016
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2015            
Janúar 419,3 -0,7 -8,2 -3,6 -1,3 0,8
Febrúar 422,1 0,7 8,3 1,0 -0,5 0,8
Mars 426,4 1,0 12,9 3,9 1,8 1,6
Apríl 427,0 0,1 1,7 7,6 1,8 1,4
Maí 428,2 0,3 3,4 5,9 3,4 1,6
Júní 429,3 0,3 3,1 2,7 3,3 1,5
Júlí 430,0 0,2 2,0 2,8 5,2 1,9
Ágúst 432,3 0,5 6,6 3,9 4,9 2,2
September 430,6 -0,4 -4,6 1,2 2,0 1,9
Október 430,9 0,1 0,8 0,8 1,8 1,8
Nóvember 429,4 -0,3 -4,1 -2,7 0,6 2,0
Desember 430,8 0,3 4,0 0,2 0,7 2,0
2016            
Janúar 428,3 -0,6 -6,7 -2,4 -0,8 2,1

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.