Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í janúar 2020, er 469,8 stig (maí 1988=100) og lækkar um 0,74% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 400,5 stig og lækkar um 0,87% frá desember 2020.
Vetrarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,9% (áhrif á vísitöluna -0,48%) og verð á húsgögnum og heimilisbúnaði lækkaði um 6,7% (-0,13). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) lækkaði um 0,6% (-0,10%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,7% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 1,6%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2020, sem er 469,8 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2020. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.276 stig fyrir mars 2020.
Breytingar á vísitölu neysluverðs 2019-2020 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Vísitala | Breytingar í hverjum mánuði, % | |||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu12 mánuði, % | |||
2019 | ||||||
Janúar | 462,0 | -0,4 | -4,8 | 2,3 | 3,2 | 3,4 |
Febrúar | 462,9 | 0,2 | 2,4 | 2,1 | 3,2 | 3,0 |
Mars | 465,3 | 0,5 | 6,4 | 1,2 | 3,8 | 2,9 |
Apríl | 467,0 | 0,4 | 4,5 | 4,4 | 3,3 | 3,3 |
Maí | 468,0 | 0,2 | 2,6 | 4,5 | 3,3 | 3,6 |
Júní | 469,8 | 0,4 | 4,7 | 3,9 | 2,6 | 3,3 |
Júlí | 468,8 | -0,2 | -2,5 | 1,6 | 3,0 | 3,1 |
Ágúst | 470,1 | 0,3 | 3,4 | 1,8 | 3,1 | 3,2 |
September | 470,5 | 0,1 | 1,0 | 0,6 | 2,2 | 3,0 |
Október | 472,2 | 0,4 | 4,4 | 2,9 | 2,2 | 2,8 |
Nóvember | 472,8 | 0,1 | 1,5 | 2,3 | 2,1 | 2,7 |
Desember | 473,3 | 0,1 | 1,3 | 2,4 | 1,5 | 2,0 |
2020 | ||||||
Janúar | 469,8 | -0,7 | -8,5 | -2,0 | 0,4 | 1,7 |