Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í janúar 2021, er 490,0 stig (maí 1988=100) og lækkar um 0,06% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 419,3 stig og lækkar um 0,24% frá desember 2020.
Vetrarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 6,5% (áhrif á vísitöluna -0,23%) og verð á húsgögnum og heimilisbúnaði lækkaði um 3,3% (-0,19%). Húsnæði, hiti og rafmagn hækkaði um 0,6% (0,19%), verð á mat og drykkjavörum hækkaði um 0,6% (0,10%) og bensín og olíur hækkuðu um 3,1% (0,10%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,7%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2021, sem er 490,0 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2021. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.675 stig fyrir mars 2021.
Breytingar á vísitölu neysluverðs 2020-2021 | |||
Maí 1988 = 100 | Vísitala | Mánaðarbreyting, % | Ársbreyting, % |
2020 | |||
Janúar | 469,8 | -0,74 | 1,7 |
Febrúar | 474,1 | 0,92 | 2,4 |
Mars | 475,2 | 0,23 | 2,1 |
Apríl | 477,5 | 0,48 | 2,2 |
Maí | 480,1 | 0,54 | 2,6 |
Júní | 482,2 | 0,44 | 2,6 |
Júlí | 482,9 | 0,15 | 3,0 |
Ágúst | 485,1 | 0,46 | 3,2 |
September | 487,0 | 0,39 | 3,5 |
Október | 489,1 | 0,43 | 3,6 |
Nóvember | 489,3 | 0,04 | 3,5 |
Desember | 490,3 | 0,20 | 3,6 |
2021 | |||
Janúar | 490,0 | -0,06 | 4,3 |