Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í janúar 2022, er 517,9 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,50% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 434,8 stig og hækkar um 0,16% frá desember 2021.
Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,5% (áhrif á vísitöluna 0,25%), verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,3% (0,18%), rafmagn og hiti hækkaði um 3,7% (0,11%) og verð á nýjum bílum hækkaði um 2,2% (0,11%).
Vetrarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 8,0% (áhrif á vísitöluna -0,30%) og verð á húsgögnumm, heimilisbúnaði o.fl. lækkaði um 2,7% (-0,17%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,7% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,7%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2022, sem er 517,9 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2022. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 10.226 stig fyrir mars 2022.