Vísitala neysluverðs í júlí 2005 er 242,7 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,12% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 227,9 stig, lækkaði um 0,13% frá því í júní.
Sumarútsölur eru hafnar og lækkaði verð á fötum og skóm um 9,3% (vísitöluáhrif -0,51%).
Eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,4% (0,22%), þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,30% en á móti vógu áhrif af lækkun meðalvaxta, -0,08%. Verð á dagvöru hækkaði um 0,8% (0,13%). Verð á bensíni hækkaði um 3,8% (0,14%).
Þann 1. júlí 2005 var þungaskattur af bílum lagður niður en í stað hans tekið upp olíugjald sem reiknast inn í verð díselolíu. Olían hækkar í verði um 105,7% sem leiðir til 0,61% vísitöluhækkunar. Þungaskatturinn var í grunni vísitölunnar, en við kerfisbreytinguna fellur hann niður, sem lækkar vísitölu neysluverðs um 0,48%. Heildaráhrifin af hækkun á verði olíunnar og kerfisbreytingunni leiða því til 0,13% vísitöluhækkunar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3% sem jafngildir 1,2% verðbólgu á ári (0,7% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs í júlí 2005, sem er 242,7 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.792 stig fyrir ágúst 2005.
Breytingar vísitölu neysluverðs 2004–2005 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Vísitala | Breytingar í hverjum mánuði, % | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
2004 | ||||||
Júlí | 234,6 | -0,5 | -5,5 | 4,6 | 3,9 | 3,6 |
Ágúst | 234,6 | 0,0 | 0,0 | 1,2 | 4,6 | 3,7 |
September | 235,6 | 0,4 | 5,2 | -0,2 | 4,3 | 3,4 |
Október | 237,4 | 0,8 | 9,6 | 4,9 | 4,7 | 3,7 |
Nóvember | 237,9 | 0,2 | 2,6 | 5,7 | 3,4 | 3,8 |
Desember | 239,0 | 0,5 | 5,7 | 5,9 | 2,8 | 3,9 |
2005 | ||||||
Janúar | 239,2 | 0,1 | 1,0 | 3,1 | 4,0 | 4,0 |
Febrúar | 239,7 | 0,2 | 2,5 | 3,1 | 4,4 | 4,5 |
Mars | 241,5 | 0,8 | 9,4 | 4,3 | 5,1 | 4,7 |
Apríl | 242,0 | 0,2 | 2,5 | 4,8 | 3,9 | 4,3 |
Maí | 240,7 | -0,5 | -6,3 | 1,7 | 2,4 | 2,9 |
Júní | 242,4 | 0,7 | 8,8 | 1,5 | 2,9 | 2,8 |
Júlí | 242,7 | 0,1 | 1,5 | 1,2 | 2,9 | 3,5 |
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2005 | ||||
Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu | |||
12 mánuði | ||||
Júní | Júlí | Áhrif | ||
2005 | 2005 | % | á vísit. | |
Vísitala neysluverðs | 135,8 | 136,0 | 3,4% | 3,4% |
Þar af: | ||||
Innlendar vörur | 121,5 | 122,3 | -2,6% | -0,4% |
Búvörur og grænmeti | 115,1 | 118,6 | -0,6% | 0,0% |
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis | 125,8 | 124,6 | -3,9% | -0,4% |
Innfluttar vörur alls | 113,1 | 112,1 | -1,5% | -0,5% |
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 109,3 | 108,2 | -2,2% | -0,6% |
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., | ||||
ávaxta og bensíns) | 137,8 | 137,3 | 3,6% | 3,2% |
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) | 137,7 | 137,1 | 3,4% | 2,7% |
Dagvara | 113,9 | 114,8 | -5,8% | -1,0% |
Talnaefni