FRÉTT VERÐLAG 12. JÚLÍ 2005

Vísitala neysluverðs í júlí 2005 er 242,7 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,12% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 227,9 stig, lækkaði um 0,13% frá því í júní.

Sumarútsölur eru hafnar og lækkaði verð á fötum og skóm um 9,3% (vísitöluáhrif -0,51%).

Eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,4% (0,22%), þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,30% en á móti vógu áhrif af lækkun meðalvaxta, -0,08%. Verð á dagvöru hækkaði um 0,8% (0,13%). Verð á bensíni hækkaði um 3,8% (0,14%).

Þann 1. júlí 2005 var þungaskattur af bílum lagður niður en í stað hans tekið upp olíugjald sem reiknast inn í verð díselolíu. Olían hækkar í verði um 105,7% sem leiðir til 0,61% vísitöluhækkunar. Þungaskatturinn var í grunni vísitölunnar, en við kerfisbreytinguna fellur hann niður, sem lækkar vísitölu neysluverðs um 0,48%. Heildaráhrifin af hækkun á verði olíunnar og kerfisbreytingunni leiða því til 0,13% vísitöluhækkunar.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3% sem jafngildir 1,2% verðbólgu á ári (0,7% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis). 

Vísitala neysluverðs í júlí 2005, sem er 242,7 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.792 stig fyrir ágúst 2005.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2004–2005
Maí 1988 = 100 Vísitala Breytingar í hverjum mánuði, % Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði,  % Síðustu 6 mánuði,  % Síðustu 12 mánuði,  %
 
2004
Júlí 234,6 -0,5 -5,5 4,6 3,9 3,6
Ágúst 234,6 0,0 0,0 1,2 4,6 3,7
September 235,6 0,4 5,2 -0,2 4,3 3,4
Október 237,4 0,8 9,6 4,9 4,7 3,7
Nóvember 237,9 0,2 2,6 5,7 3,4 3,8
Desember 239,0 0,5 5,7 5,9 2,8 3,9
2005
Janúar 239,2 0,1 1,0 3,1 4,0 4,0
Febrúar 239,7 0,2 2,5 3,1 4,4 4,5
Mars 241,5 0,8 9,4 4,3 5,1 4,7
Apríl 242,0 0,2 2,5 4,8 3,9 4,3
Maí 240,7 -0,5 -6,3 1,7 2,4 2,9
Júní 242,4 0,7 8,8 1,5 2,9 2,8
Júlí 242,7 0,1 1,5 1,2 2,9 3,5

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2005
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu
      12 mánuði
  Júní Júlí   Áhrif  
  2005 2005 % á vísit.
         
Vísitala neysluverðs 135,8 136,0 3,4% 3,4%
Þar af:        
Innlendar vörur 121,5 122,3 -2,6% -0,4%
Búvörur og grænmeti 115,1 118,6 -0,6% 0,0%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 125,8 124,6 -3,9% -0,4%
Innfluttar vörur alls 113,1 112,1 -1,5% -0,5%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  109,3 108,2 -2,2% -0,6%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm.,         
ávaxta og bensíns) 137,8 137,3 3,6% 3,2%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 137,7 137,1 3,4% 2,7%
Dagvara 113,9 114,8 -5,8% -1,0%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.