Vísitala neysluverðs í júlí 2006 er 263,1 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,46% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 243,0 stig, hækkaði um 0,41% frá því í júní.
Verð á bensíni og olíum hækkaði um 3,5% (vísitöluáhrif 0,24%) og verð á dagvörum um 1,3% (0,2%). Verð á eigin húsnæði hækkaði um 1,5% (0,26%) þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,18% og af hækkun vaxta 0,08%.
Sumarútsölur eru víða hafnar og lækkaði verð á fötum og skóm um 9,6% (-0,46%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,4% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,1% sem jafngildir 13,0% verðbólgu á ári (12,2% fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs í júlí 2006, sem er 263,1 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.195 stig fyrir ágúst 2006.
Breytingar vísitölu neysluverðs 2005–2006 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2005 | ||||||
Júlí | 242,7 | 0,1 | 1,5 | 1,2 | 2,9 | 3,5 |
Ágúst | 243,2 | 0,2 | 2,5 | 4,2 | 2,9 | 3,7 |
September | 246,9 | 1,5 | 19,9 | 7,6 | 4,5 | 4,8 |
Október | 248,4 | 0,6 | 7,5 | 9,7 | 5,4 | 4,6 |
Nóvember | 248,0 | -0,2 | -1,9 | 8,1 | 6,2 | 4,2 |
Desember | 248,9 | 0,4 | 4,4 | 3,3 | 5,4 | 4,1 |
2006 | ||||||
Janúar | 249,7 | 0,3 | 3,9 | 2,1 | 5,9 | 4,4 |
Febrúar | 249,5 | -0,1 | -1,0 | 2,4 | 5,2 | 4,1 |
Mars | 252,3 | 1,1 | 14,3 | 5,6 | 4,4 | 4,5 |
Apríl | 255,2 | 1,1 | 14,7 | 9,1 | 5,5 | 5,5 |
Maí | 258,9 | 1,4 | 18,9 | 15,9 | 9,0 | 7,6 |
Júní | 261,9 | 1,2 | 14,8 | 16,1 | 10,7 | 8,0 |
Júlí | 263,1 | 0,5 | 5,6 | 13,0 | 11,0 | 8,4 |
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2006 | ||||
Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu 12 mánuði | |||
Júní 2006 | Júlí 2006 | Áhrif á vísit. | ||
% | ||||
Vísitala neysluverðs | 146,8 | 147,4 | 8,4% | 8,4% |
Þar af: | ||||
Innlendar vörur | 133,3 | 135,3 | 9,7% | 1,4% |
Búvörur og grænmeti | 129,5 | 130,6 | 12,5% | 0,7% |
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis | 135,7 | 138,4 | 7,9% | 0,7% |
Innfluttar vörur alls | 120,4 | 120,0 | 6,5% | 2,3% |
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 116,7 | 116,2 | 6,8% | 2,2% |
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., | ||||
ávaxta og bensíns) | 147,4 | 147,7 | 7,6% | 6,6% |
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) | 148,1 | 148,4 | 8,2% | 6,5% |
Dagvara | 127,1 | 128,8 | 12,2% | 1,8% |
Talnaefni