FRÉTT VERÐLAG 12. JÚLÍ 2006

Vísitala neysluverðs í júlí 2006 er 263,1 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,46% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 243,0 stig, hækkaði um 0,41% frá því í júní.

Verð á bensíni og olíum hækkaði um 3,5% (vísitöluáhrif 0,24%) og verð á dagvörum um 1,3% (0,2%). Verð á eigin húsnæði hækkaði um 1,5% (0,26%) þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,18% og af hækkun vaxta 0,08%.

Sumarútsölur eru víða hafnar og lækkaði verð á fötum og skóm um 9,6% (-0,46%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,4% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,1% sem jafngildir 13,0% verðbólgu á ári (12,2% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í júlí 2006, sem er 263,1 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.195 stig fyrir ágúst 2006.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2005–2006
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2005
Júlí 242,7 0,1 1,5 1,2 2,9 3,5
Ágúst 243,2 0,2 2,5 4,2 2,9 3,7
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8
Október 248,4 0,6 7,5 9,7 5,4 4,6
Nóvember 248,0 -0,2 -1,9 8,1 6,2 4,2
Desember 248,9 0,4 4,4 3,3 5,4 4,1
2006
Janúar 249,7 0,3 3,9 2,1 5,9 4,4
Febrúar 249,5 -0,1 -1,0 2,4 5,2 4,1
Mars 252,3 1,1 14,3 5,6 4,4 4,5
Apríl 255,2 1,1 14,7 9,1 5,5 5,5
Maí 258,9 1,4 18,9 15,9 9,0 7,6
Júní 261,9 1,2 14,8 16,1 10,7 8,0
Júlí 263,1 0,5 5,6 13,0 11,0 8,4

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2006
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Júní 2006 Júlí 2006 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 146,8 147,4 8,4% 8,4%
Þar af:    
Innlendar vörur 133,3 135,3 9,7% 1,4%
Búvörur og grænmeti 129,5 130,6 12,5% 0,7%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 135,7 138,4 7,9% 0,7%
Innfluttar vörur alls 120,4 120,0 6,5% 2,3%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  116,7 116,2 6,8% 2,2%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 147,4 147,7 7,6% 6,6%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 148,1 148,4 8,2% 6,5%
Dagvara 127,1 128,8 12,2% 1,8%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.