FRÉTT VERÐLAG 11. JÚLÍ 2007

Vísitala neysluverðs í júlí 2007 er 273,0 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,22% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 245,9 stig, lækkaði um 0,12% frá júní.

Sumarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 9,3% (vísitöluáhrif -0,44%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,7% (0,31%), aðallega vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,2%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 5,1% síðastliðna tólf mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,6% sem jafngildir 6,6% verðbólgu á ári (3,7% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í júlí 2007, sem er 273,0 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2007. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.390 stig fyrir ágúst 2007.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2006–2007
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2006
Júlí 263,1 0,5 5,6 13,0 11,0 8,4
Ágúst 264,0 0,3 4,2 8,1 12,0 8,6
September 265,6 0,6 7,5 5,8 10,8 7,6
Október 266,2 0,2 2,7 4,8 8,8 7,2
Nóvember 266,1 0,0 -0,4 3,2 5,6 7,3
Desember 266,2 0,0 0,5 0,9 3,3 7,0
2007
Janúar 266,9 0,3 3,2 1,1 2,9 6,9
Febrúar 268,0 0,4 5,1 2,9 3,1 7,4
Mars 267,1 -0,3 -4,0 1,4 1,1 5,9
Apríl 268,7 0,6 7,4 2,7 1,9 5,3
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8


Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2007
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Júní Júlí %
Vísitala neysluverðs 152,6 153,0 3,8% 3,8%
Þar af:    
Innlendar vörur 130,1 130,8 -3,4% -0,5%
Búvörur og grænmeti 126,7 126,8 -2,9% -0,2%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 132,2 133,3 -3,7% -0,3%
Innfluttar vörur alls 121,9 120,2 0,2% 0,1%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  117,8 116,1 -0,1% 0,0%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 154,7 155,0 4,9% 4,3%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 155,5 155,8 5,0% 4,0%
Dagvara 124,5 124,8 -3,1% -0,5%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.