FRÉTT VERÐLAG 22. JÚLÍ 2016

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2016 er 434,9 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,32% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 396,0 stig og lækkaði hún um 0,55% frá júní.

Matur hækkaði í verði um 1,0% (áhrif á vísitöluna 0,13%). Sumarútsölur hafa víða verið í gangi og lækkaði verð á fatnaði og skóm um 11,8% (-0,51%) og á sama tíma lækkuðu hreinlætis og snyrtivörur í verði um 6,7% (-0,1%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,7% (0,10%). Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 13,5% (0,17%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,1% en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 0,6%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2016, sem er 434,9 stig, gildir til verðtryggingar í september 2016. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.587 stig fyrir september 2016.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2016
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu 12 mánuði
     
        Áhrif á vísit.
  Júní Júlí %
         
Vísitala neysluverðs 244,4 243,7 1,1 1,1
Þar af:        
Innlendar vörur og grænmeti 223,9 225,3 3,2 0,5
Búvörur og grænmeti 209,8 212,3 3,4 0,2
Innlendar vörur án búvöru 234,2 234,7 3,0 0,2
Innfluttar vörur alls 190,8 186,7 -3,1 -1,1
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  181,0 176,6 -3,6 -1,2
Dagvara 215,8 216,9 1,3 0,2
Breytingar vísitölu neysluverðs 2015-2016
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2015            
Júlí 430,0 0,2 2,0 2,8 5,2 1,9
Ágúst 432,3 0,5 6,6 3,9 4,9 2,2
September 430,6 -0,4 -4,6 1,2 2,0 1,9
Október 430,9 0,1 0,8 0,8 1,8 1,8
Nóvember 429,4 -0,3 -4,1 -2,7 0,6 2,0
Desember 430,8 0,3 4,0 0,2 0,7 2,0
2016            
Janúar 428,3 -0,6 -6,7 -2,4 -0,8 2,1
Febrúar 431,2 0,7 8,4 1,7 -0,5 2,2
Mars 432,8 0,4 4,5 1,9 1,0 1,5
Apríl 433,7 0,2 2,5 5,1 1,3 1,6
Maí 435,5 0,4 5,1 4,0 2,9 1,7
Júní 436,3 0,2 2,2 3,3 2,6 1,6
Júlí 434,9 -0,3 -3,8 1,1 3,1 1,1

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.