Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 29. ágúst 2017 11:11 frá upprunalegri útgáfu
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí 2017 er 442,9 stig (maí 1988=100) og lækkar um 0,02% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 383,8 stig og lækkar um 0,57% frá júní 2017.
Verð á fötum og skóm lækkar um 11,0% (áhrif á vísitöluna -0,41%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkar um 1,7% (0,34%) og flugfargjöld til útlanda hækka um 20,3% (0,25%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,8% en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 3,1%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2017, sem er 442,9 stig, gildir til verðtryggingar í september 2017. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.745 stig fyrir september 2017.
Breytingar á vísitölu neysluverðs 2016-2017 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2016 | ||||||
Júlí | 434,9 | -0,3 | -3,8 | 1,1 | 3,1 | 1,1 |
Ágúst | 436,4 | 0,3 | 4,2 | 0,8 | 2,4 | 0,9 |
September | 438,5 | 0,5 | 5,9 | 2,0 | 2,7 | 1,8 |
Október | 438,5 | 0,0 | 0,0 | 3,4 | 2,2 | 1,8 |
Nóvember | 438,4 | 0,0 | -0,3 | 1,8 | 1,3 | 2,1 |
Desember | 439,0 | 0,1 | 1,7 | 0,5 | 1,2 | 1,9 |
2017 | ||||||
Janúar | 436,5 | -0,6 | -6,6 | -1,8 | 0,7 | 1,9 |
Febrúar | 439,6 | 0,7 | 8,9 | 1,1 | 1,5 | 1,9 |
Mars | 439,9 | 0,1 | 0,8 | 0,8 | 0,6 | 1,6 |
Apríl | 442,1 | 0,5 | 6,2 | 5,2 | 1,6 | 1,9 |
Maí | 443,0 | 0,2 | 2,5 | 3,1 | 2,1 | 1,7 |
Júní | 443,0 | 0,0 | 0,0 | 2,8 | 1,8 | 1,5 |
Júlí | 442,9 | 0,0 | -0,3 | 0,7 | 3,0¹ | 1,8 |
¹Gildi leiðrétt 29. ágúst 2017