FRÉTT VERÐLAG 24. JÚLÍ 2024

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júlí 2024, er 633,2 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,46% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 512,9 stig og hækkar um 0,45% frá júní 2024.

Sumarútsölur eru víða í gangi og lækkuðu föt og skór um 6,2% (áhrif á vísitöluna -0,24%) en einnig húsgögn og heimilisbúnaður um 6,2% (-0,13%). Matvörur hækkuðu um 1,1% (0,15%), Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,5% (0,09%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 16,5% (0.34%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,2%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2024, sem er 633,2 stig, gildir til verðtryggingar í september 2024.





Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.