Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júlí 2025, er 658,6 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,32% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 528,5 stig og hækkar um 0,32% frá júní 2025.
Sumarútsölur eru víða í gangi og lækkuðu föt og skór um 4,8% (áhrif á vísitöluna -0,18%), einnig lækkuðu húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. um 2,2% (-0,10%). Húsnæði, hiti og rafmagn hækkaði um 0,4% (0,13%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 19,9% (0,48%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,0% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,0%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2025, sem er 658,6 stig, gildir til verðtryggingar í september 2025.