Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júlí 2026, er 693,2 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,36% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 553,9 stig og hækkar um 0,31% frá júní 2026.
Sumarútsölur eru víða í gangi og lækkuðu föt og skór um 4,7% (áhrif á vísitöluna -0,16%) og húsbúnaður, heimilistæki o.fl. lækkuðu um 2,4% (-0,09). Einnig lækkuðu orkugjafar fyrir farartæki (bensín, dísel og rafmagn) um 3,6% (-0,10%). Aftur á móti hækkaði kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) um 0,6% (0,12%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 15,7% (0,48%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2026, sem er 693,2 stig, gildir til verðtryggingar í september 2026.