FRÉTT VERÐLAG 10. JÚNÍ 2004

Vísitala neysluverðs í júní 2004 er 235,7 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,77% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 228,7 stig, 0,57% hærri en í maí.
     Markaðsverð á húsnæði hækkaði um 2,1% (vísitöluáhrif 0,26%) og verð á bensíni og gasolíu hækkaði um 6,1% (0,24%). Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 0,7% (0,11%).
     Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,9% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,2% sem jafngildir 9,0% verðbólgu á ári (án húsnæðis 6,9%). 
      Vísitala neysluverðs í júní 2004, sem er 235,7 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2004. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.654 stig fyrir júlí 2004. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.