FRÉTT VERÐLAG 10. JÚNÍ 2005

Vísitala neysluverðs í júní 2005 er 242,4 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,71% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 228,2 stig, hækkaði um 0,35% frá því í maí.

Eigið húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 2,4% (vísitöluáhrif 0,38%), þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,49% en á móti vógu áhrif af lækkun meðalvaxta, -0,11%. Verð á dagvöru hækkaði um 1,5% (0,24%), þar sem áhrif af miklum verðlækkunum síðustu mánaða gengu að nokkru til baka. 

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur lækkað um 0,2% frá júní 2004. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,4% sem jafngildir 1,5% verðbólgu á ári (2,1% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis). 

Vísitala neysluverðs í júní 2005, sem er 242,4 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2005. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.786 stig fyrir júlí 2005.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.