FRÉTT VERÐLAG 26. JÚNÍ 2008

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júní 2008 er 307,1 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,89% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 275,9 stig og hækkaði um 0,84% frá maí.

Verð á bensíni og olíum hækkaði um 7,2% (vísitöluáhrif 0,35%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 0,4% (0,06%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,04% en áhrif af hækkun raunvaxta voru 0,10%. Greidd húsaleiga hækkaði um 4,3% (0,10%). Þá hækkaði kostnaður vegna viðhalds og viðgerða á húsnæði um 2,0% (0,10%).

Síðastliðna tólf mánuði  hefur vísitala neysluverðs hækkað um 12,7% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 12,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,8% sem jafngildir 25,1% verðbólgu á ári (29,4% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júní 2008, sem er 307,1 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.064 stig fyrir ágúst 2008.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2007
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9
2008
Janúar 282,3 0,2 2,2 6,2 6,9 5,8
Febrúar 286,2 1,4 17,9 9,3 9,8 6,8
Mars 290,4 1,5 19,1 12,8 10,1 8,7
Apríl 300,3 3,4 49,5 28,0 16,6 11,8
Maí 304,4 1,4 17,7 28,0 18,3 12,3
Júní 307,1 0,9 11,2 25,1 18,8 12,7

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Maí Júní %
Vísitala neysluverðs 170,5 172,1 12,7 12,7
Þar af:    
Innlendar vörur 146,7 147,2 13,1 1,7
Búvörur og grænmeti 145,2 145,5 14,8 0,8
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 147,2 147,7 11,8 0,9
Innfluttar vörur alls 138,5 140,3 15,1 5,2
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  134,9 136,7 16,0 5,1
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm.,     
ávaxta og bensíns) 170,8 171,7 11,0 9,9
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 172,5 173,5 11,6 9,6
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 170,4 171,3 10,1 8,3
Dagvara 143,4 144,6 16,1 2,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.