FRÉTT VERÐLAG 27. JÚNÍ 2018

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júní 2018 er 454,6 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,62% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 390,1 stig og hækkar um 0,46% frá maí 2018.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkar um 1,1% (áhrif á vísitölu 0,23%). Flugfargjöld til útlanda hækka um 15,2% (0,18%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,6% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 1,1%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júní 2018, sem er 454,6 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2018. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.976 stig fyrir ágúst 2018.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2017-2018
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2017            
Júní 443,0 0,0 0,0 2,8 1,8 1,5
Júlí 442,9 0,0 -0,3 0,7 3,0 1,8
Ágúst 444,0 0,2 3,0 0,9 2,0 1,7
September 444,6 0,1 1,6 1,5 2,1 1,4
Október 446,7 0,5 5,8 3,5 2,1 1,9
Nóvember 446,0 -0,2 -1,9 1,8 1,4 1,7
Desember 447,2 0,3 3,3 2,4 1,9 1,9
2018            
Janúar 446,8 -0,1 -1,1 0,1 1,8 2,4
Febrúar 449,5 0,6 7,5 3,2 2,5 2,3
Mars 452,0 0,6 6,9 4,4 3,4 2,8
Apríl 452,2 0,0 0,5 4,9 2,5 2,3
Maí 451,8 -0,1 -1,1 2,1 2,6 2,0
Júní 454,6 0,6 7,7 2,3 3,3 2,6

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.