FRÉTT VERÐLAG 27. JÚNÍ 2024

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júní 2024, er 630,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,48% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 510,6 stig og hækkar um 0,41% frá maí 2024.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) jókst um 0,8% (áhrif á vísitöluna 0,15%). Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 8,0% (0,15%). Verð á hótelum og veitingastöðum hækkaði um 2,1% (0,11%) en stóran hluta af þeirri hækkun má rekja til hækkunar á gistingu um 17,0% (0,09%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,8% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,0%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júní 2024, sem er 630,3 stig, gildir til verðtryggingar í ágúst 2024.

Aðferð húsaleiguígilda tekin upp
Hagstofan reiknar nú í fyrsta sinn reiknaða húsaleigu með aðferð húsaleiguígilda. Tengil á greinargerð um nýju aðferðina er að finna í lok fréttarinnar.





Húsnæðisliður í vísitölu neysluverðs - Greinargerð

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.