FRÉTT VERÐLAG 11. MAÍ 2006

Vísitala neysluverðs í maí 2006 er 258,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,45% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 239,6 stig, hækkaði um 1,48% frá því í apríl.

Verð á liðnum ferðir og flutningar hækkaði um 5,2% (vísitöluáhrif 0,89%). Þar af hækkaði verð á bensíni og díselolíu um 6,5% (0,44%) og verð á nýjum bílum hækkaði um 5,3% (0,32%). Verð á tækjum og öðrum vörum til tómstundaiðkunar hækkaði um 3,2% (0,16%).

Verð á eigin húsnæði í vísitölu neysluverðs hækkaði um 1,8% (0,31%), þar af voru áhrif af hækkun vaxta 0,06% en 0,25% af hækkun markaðsverðs.

Verð á mjólk og mjólkurvörum lækkaði um 5,5% (-0,13%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 7,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 5,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,8% sem jafngildir 15,9% verðbólgu á ári (einnig 15,9% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í maí 2006, sem er 258,9 stig, gildir til verðtryggingar í júní 2006. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.112 stig fyrir júní 2006.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2005–2006
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2005
Maí 240,7 -0,5 -6,3 1,7 2,4 2,9
Júní 242,4 0,7 8,8 1,5 2,9 2,8
Júlí 242,7 0,1 1,5 1,2 2,9 3,5
Ágúst 243,2 0,2 2,5 4,2 2,9 3,7
September 246,9 1,5 19,9 7,6 4,5 4,8
Október 248,4 0,6 7,5 9,7 5,4 4,6
Nóvember 248,0 -0,2 -1,9 8,1 6,2 4,2
Desember 248,9 0,4 4,4 3,3 5,4 4,1
2006
Janúar 249,7 0,3 3,9 2,1 5,9 4,4
Febrúar 249,5 -0,1 -1,0 2,4 5,2 4,1
Mars 252,3 1,1 14,3 5,6 4,4 4,5
Apríl 255,2 1,1 14,7 9,1 5,5 5,5
Maí 258,9 1,4 18,9 15,9 9,0 7,6

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2006
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Apríl 2006 Maí 2006 Áhrif á vísit.
  %
Vísitala neysluverðs 143,0 145,1 7,6% 7,6%
Þar af:    
Innlendar vörur 129,7 129,4 8,8% 1,2%
Búvörur og grænmeti 125,7 124,2 10,8% 0,6%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 132,1 132,8 7,5% 0,6%
Innfluttar vörur alls 116,1 119,5 5,3% 1,9%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  112,2 115,8 5,5% 1,8%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 143,9 145,7 6,4% 5,6%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 144,2 146,3 6,9% 5,5%
Dagvara 123,3 122,6 9,3% 1,4%


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.