FRÉTT VERÐLAG 11. MAÍ 2007

Vísitala neysluverðs í maí 2007 er 271,0 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,86% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 245,7 stig, hækkaði um 0,82% frá apríl.

Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,0% (vísitöluáhrif 0,18%), aðallega vegna hækkunar á markaðsverði. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,3% (0,16%) og verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 3,1% (0,14%). 

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,7% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 2,5%. Fastskattavísitala neysluverðs hefur hækkað um 8,1% síðastliðna 12 mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,1% sem jafngildir 4,6% verðbólgu á ári (0,7% verðbólga fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs í maí 2007, sem er 271,0 stig, gildir til verðtryggingar í júní 2007. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.351 stig fyrir júní 2007.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2006–2007
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2006
Maí 258,9 1,4 18,9 15,9 9,0 7,6
Júní 261,9 1,2 14,8 16,1 10,7 8,0
Júlí 263,1 0,5 5,6 13,0 11,0 8,4
Ágúst 264,0 0,3 4,2 8,1 12,0 8,6
September 265,6 0,6 7,5 5,8 10,8 7,6
Október 266,2 0,2 2,7 4,8 8,8 7,2
Nóvember 266,1 0,0 -0,4 3,2 5,6 7,3
Desember 266,2 0,0 0,5 0,9 3,3 7,0
2007
Janúar 266,9 0,3 3,2 1,1 2,9 6,9
Febrúar 268,0 0,4 5,1 2,9 3,1 7,4
Mars 267,1 -0,3 -4,0 1,4 1,1 5,9
Apríl 268,7 0,6 7,4 2,7 1,9 5,3
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2007
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
  Áhrif á vísit.
  Apríl Maí %
Vísitala neysluverðs 150,6 151,8 4,7% 4,7%
Þar af:    
Innlendar vörur 129,0 130,6 0,9% 0,1%
Búvörur og grænmeti 125,4 126,7 2,0% 0,1%
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 131,2 133,0 0,2% 0,0%
Innfluttar vörur alls 120,1 121,2 1,4% 0,5%
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  116,0 117,1 1,1% 0,3%
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 153,0 154,1 5,7% 5,1%
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 153,8 154,9 5,9% 4,8%
Dagvara 123,5 124,9 1,8% 0,3%

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.