FRÉTT VERÐLAG 26. MAÍ 2008

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í maí 2008 er 304,4 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,37% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 273,6 stig og hækkaði um 1,48% frá apríl.

Gengissig krónunnar og erlendar verðhækkanir halda áfram að skila sér út í verðlagið og hækkaði verð á innfluttum vörum um 1,7% (vísitöluáhrif 0,61%). Verð á bensíni og olíum hækkaði um 5,7% (0,26%).

Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,2% (-0,04%). Þar af voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,15% en áhrif af hækkun raunvaxta voru 0,11%. Þá hækkaði kostnaður vegna viðhalds og viðgerða húsnæðis um 5,7% (0,27%).

Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,9% (0,23%).

Síðastliðna tólf mánuði  hefur vísitala neysluverðs hækkað um 12,3% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 11,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,4% sem jafngildir 28% verðbólgu á ári (32,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í maí 2008, sem er 304,4 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 6.010 stig fyrir júlí 2008.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2007
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9
2008
Janúar 282,3 0,2 2,2 6,2 6,9 5,8
Febrúar 286,2 1,4 17,9 9,3 9,8 6,8
Mars 290,4 1,5 19,1 12,8 10,1 8,7
Apríl 300,3 3,4 49,5 28,0 16,6 11,8
Maí 304,4 1,4 17,7 28,0 18,3 12,3

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2008
Undirvísitölur mars 1997=100 Breyting síðustu 12 mánuði
Áhrif á vísit.
  Apríl Maí %
Vísitala neysluverðs 168,2 170,5 12,3 12,3
Þar af:    
Innlendar vörur 144,0 146,7 12,4 1,6
Búvörur og grænmeti 142,8 145,2 14,6 0,8
Innlendar vörur án búvöru og grænmetis 144,2 147,2 10,7 0,8
Innfluttar vörur alls 136,2 138,5 14,3 5,0
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  132,5 134,9 15,2 4,8
Kjarnavísitala 1 (VNV án búvöru, grænm., 
ávaxta og bensíns) 168,9 170,8 10,8 9,7
Kjarnavísitala 2 (kjarnavísitala 1 án opinberrar þjónustu) 170,4 172,5 11,3 9,4
Kjarnavísitala 3 (kjarnavísitala 2 án vaxtaáhrifa) 168,6 170,4 9,9 8,2
Dagvara 140,4 143,4 14,8 2,2

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.