FRÉTT VERÐLAG 29. MAÍ 2017

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í maí 2017 er 443,0 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,20% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 387,6 stig og lækkaði hún um 0,41% frá apríl 2017.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkar um 2,5% (áhrif á vísitöluna 0,48%) en flugfargjöld til útlanda lækka um 8,6% (-0,10%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,7% en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 2,6%.


Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í maí 2017, sem er 443,0 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2017. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.747 stig fyrir júlí 2017.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2016-2017
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2016            
Maí 435,5 0,4 5,1 4,0 2,9 1,7
Júní 436,3 0,2 2,2 3,3 2,6 1,6
Júlí 434,9 -0,3 -3,8 1,1 3,1 1,1
Ágúst 436,4 0,3 4,2 0,8 2,4 0,9
September 438,5 0,5 5,9 2,0 2,7 1,8
Október 438,5 0,0 0,0 3,4 2,2 1,8
Nóvember 438,4 0,0 -0,3 1,8 1,3 2,1
Desember 439,0 0,1 1,7 0,5 1,2 1,9
2017            
Janúar 436,5 -0,6 -6,6 -1,8 0,7 1,9
Febrúar 439,6 0,7 8,9 1,1 1,5 1,9
Mars 439,9 0,1 0,8 0,8 0,6 1,6
Apríl 442,1 0,5 6,2 5,2 1,6 1,9
Maí 443,0 0,2 2,5 3,1 2,1 1,7

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.