FRÉTT VERÐLAG 30. MAÍ 2022

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í maí 2022, er 539,5 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,77% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 450,2 stig og hækkar um 0,42% frá apríl 2022.

Verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 0,9% (áhrif á vísitöluna 0,14%), kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 2,3% (0,43%), verð á nýjum bílum hækkaði um 2,1% (0,11%) og verð á bensíni og olíum hækkaði um 2,9% (0,10%). Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 6,9% (-0,14%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 7,6% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 5,5%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í maí 2022, sem er 539,5 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2022. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 10.652 stig fyrir júlí 2022.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.