FRÉTT VERÐLAG 26. MAÍ 2023

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í maí 2023, er 590,6 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,39% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 487,8 stig og hækkar um 0,14% frá apríl 2023.

Verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 0,8% (áhrif á vísitöluna 0,12%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,3% (0,25%) en flugfargjöld til útlanda lækkuðu hins vegar um 7,0% (-0,15%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,5% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 8,4%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í maí 2023, sem er 590,6 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2023. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 11.661 stig fyrir júlí 2023.




Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.