Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í maí 2024, er 627,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,58% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 508,5 stig og hækkar um 0,51% frá apríl 2024.
Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) jókst um 0,7% (áhrif á vísitöluna 0,14%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,2% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,2%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í maí 2024, sem er 627,3 stig, gildir til verðtryggingar í júlí 2024.