FRÉTT VERÐLAG 10. MARS 2004

Vísitala neysluverðs í mars 2004 er 230,7 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,57% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 224,9 stig, 0,63% hærri en í febrúar.
       Vetrarútsölum er víðast lokið og í kjölfar þess hækkaði verð á fötum og skóm um 10,1% (vísitöluáhrif 0,48%). Þá lækkaði verð á matar- og drykkjarvörum um 0,7% (-0,11%).
       Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3% sem jafngildir 1,2% verðbólgu á ári. 
       Vísitala neysluverðs í mars 2004, sem er 230,7 stig, gildir til verðtryggingar í apríl 2004. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 4.555 stig fyrir apríl 2004. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.