FRÉTT VERÐLAG 28. MARS 2008

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars 2008 er 290,4 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,47% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 258,7 stig og hækkaði um 1,49% frá febrúar.

Kostnaður vegna reksturs eigin bifreiðar jókst um 3,1% (vísitöluáhrif 0,45%). Þar af hækkaði verð á nýjum bílum um 2,9% (0,18%) og á bensíni og olíum um 5,0% (0,25%).

Vetrarútsölum er víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 6,3% (0,26%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,1% (0,22%), þar af voru 0,15% áhrif vegna hærri raunvaxta og 0,07% vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis.

Síðastliðna tólf mánuði (miðað við verðlag í upphafi mánaðar í fyrra en um miðjan mánuð nú) hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,7% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,4%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,1% sem jafngildir 12,8% verðbólgu á ári (12,1% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2008, sem er 290,4 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2008. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 5.734 stig fyrir maí 2008.

Breytingar vísitölu neysluverðs 2007–2008
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2007
Mars 267,1 -0,3 -4,0 1,4 1,1 5,9
Apríl 268,7 0,6 7,4 2,7 1,9 5,3
Maí 271,0 0,9 10,8 4,6 3,7 4,7
Júní 272,4 0,5 6,4 8,2 4,7 4,0
Júlí 273,0 0,2 2,7 6,6 4,6 3,8
Ágúst 273,1 0,0 0,4 3,1 3,8 3,4
September 276,7 1,3 17,0 6,5 7,3 4,2
Október 278,1 0,5 6,2 7,7 7,1 4,5
Nóvember 279,9 0,6 8,0 10,3 6,7 5,2
Desember 281,8 0,7 8,5 7,6 7,0 5,9
2008
Janúar 282,3 0,2 2,2 6,2 6,9 5,8
Febrúar 286,2 1,4 17,9 9,3 9,8 6,8
Mars 290,4 1,5 19,1 12,8 10,1 8,7

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.