FRÉTT VERÐLAG 26. MARS 2018

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars 2018 er 452,0 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,56% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 388,1 stig og hækkar um 0,36% frá febrúar 2018.

Vetrarútsölum er lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 4,4% (áhrif á vísitöluna 0,15%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkar um 1,4% (0,29%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,8% en vísitalan án húsnæðis hefur lækkað um 0,3%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2018, sem er 452,0 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2018. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.925 stig fyrir maí 2018.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2017-2018
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2017            
Mars 439,9 0,1 0,8 0,8 0,6 1,6
Apríl 442,1 0,5 6,2 5,2 1,6 1,9
Maí 443,0 0,2 2,5 3,1 2,1 1,7
Júní 443,0 0,0 0,0 2,8 1,8 1,5
Júlí 442,9 0,0 -0,3 0,7 3,0 1,8
Ágúst 444,0 0,2 3,0 0,9 2,0 1,7
September 444,6 0,1 1,6 1,5 2,1 1,4
Október 446,7 0,5 5,8 3,5 2,1 1,9
Nóvember 446,0 -0,2 -1,9 1,8 1,4 1,7
Desember 447,2 0,3 3,3 2,4 1,9 1,9
2018            
Janúar 446,8 -0,1 -1,1 0,1 1,8 2,4
Febrúar 449,5 0,6 7,5 3,2 2,5 2,3
Mars 452,0 0,6 6,9 4,4 3,4 2,8

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.