FRÉTT VERÐLAG 25. MARS 2021

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í mars 2021, er 495,8 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,49% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 424,3 stig og hækkar um 0,43% frá febrúar 2021.

Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,9% (áhrif á vísitöluna 0,15%) og bensín og olíur hækkuðu um 4,0% (0,13%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2021, sem er 495,8 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2021. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.790 stig fyrir maí 2021.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2020-2021
Maí 1988 = 100 Vísitala Mánaðarbreyting, % Ársbreyting, %
2020
Mars 475,2 0,23 2,1
Apríl 477,5 0,48 2,2
Maí 480,1 0,54 2,6
Júní 482,2 0,44 2,6
Júlí 482,9 0,15 3,0
Ágúst 485,1 0,46 3,2
September 487,0 0,39 3,5
Október 489,1 0,43 3,6
Nóvember 489,3 0,04 3,5
Desember 490,3 0,20 3,6
2021
Janúar 490,0 -0,06 4,3
Febrúar 493,4 0,69 4,1
Mars 495,8 0,49 4,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.