FRÉTT VERÐLAG 29. MARS 2022

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í mars 2022, er 528,8 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,94% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 443,9 stig og hækkar um 0,82% frá febrúar 2022.

Verð á fötum og skóm hækkaði um 5,3% (áhrif á vísitöluna 0,19%), kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 2,0% (0,35%) og verð á bensíni og olíum hækkaði um 8,2% (0,27%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,7% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,6%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2022, sem er 528,8 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2022. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 10.441 stig fyrir maí 2022.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.