Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í mars 2023, er 580,7 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,59% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 481,9 stig og hækkar um 0,52% frá febrúar 2023.
Verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 0,7% (áhrif á vísitöluna 0,11%), verð á fötum og skóm hækkaði um 4,3% (0,14%) og kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,8% (0,15%). Verð á húsgögnum, heimilisbúnaði o.fl. lækkaði um 1,7% (-0,11%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,8% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 8,6%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2023, sem er 580,7 stig, gildir til verðtryggingar í maí 2023. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 11.466 stig fyrir maí 2023.