FRÉTT VERÐLAG 26. NÓVEMBER 2015

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í nóvember 2015 er 429,4 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,35% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 394,7 stig og lækkaði hún um 0,58% frá október.

Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 13,7% (áhrif á vísitöluna -0,17%) og verð á mat og drykkjarvörum lækkaði um 0,7% (-0,10%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,8% (0,12%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,0% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 0,3%.


Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2015, sem er 429,4 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2016. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.479 stig fyrir janúar 2016.

Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2015
Undirvísitölur mars 1997=100     Breyting síðustu 12 mánuði
     
        Áhrif á vísit.
  Október Nóvember %
         
Vísitala neysluverðs 241,4 240,6 2,0 2,0
Þar af:        
Innlendar vörur og grænmeti 221,8 220,8 4,6 0,6
Búvörur og grænmeti 210,3 208,4 6,4 0,4
Innlendar vörur án búvöru 229,5 229,4 2,8 0,2
Innfluttar vörur alls 192,7 191,6 -3,2 -1,1
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks  183,3 182,2 -3,5 -1,1
Dagvara 216,2 214,8 3,4 0,6
Breytingar vísitölu neysluverðs 2014–2015
Maí 1988 = 100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
    Breytingar í hverjum mánuði, %
    Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu  12 mánuði, %
  Vísitala
2014            
Nóvember 421,0 -0,5 -6,1 -2,0 -0,1 1,0
Desember 422,3 0,3 3,8 -0,3 -0,2 0,8
2015            
Janúar 419,3 -0,7 -8,2 -3,6 -1,3 0,8
Febrúar 422,1 0,7 8,3 1,0 -0,5 0,8
Mars 426,4 1,0 12,9 3,9 1,8 1,6
Apríl 427,0 0,1 1,7 7,6 1,8 1,4
Maí 428,2 0,3 3,4 5,9 3,4 1,6
Júní 429,3 0,3 3,1 2,7 3,3 1,5
Júlí 430,0 0,2 2,0 2,8 5,2 1,9
Ágúst 432,3 0,5 6,6 3,9 4,9 2,2
September 430,6 -0,4 -4,6 1,2 2,0 1,9
Október 430,9 0,1 0,8 0,8 1,8 1,8
Nóvember 429,4 -0,3 -4,1 -2,7 0,6 2,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.