Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í nóvember 2020, er 489,3 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,04% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 419,7 stig og hækkar um 0,10% frá október 2020.
Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. hækkaði um 1,1% (áhrif á vísitöluna 0,06%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,5% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,2%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2020, sem er 489,3 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2021. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.661 stig fyrir janúar 2021.
Breytingar á vísitölu neysluverðs 2019-2020 | |||
Maí 1988 = 100 | Vísitala | Mánaðarbreyting, % | Ársbreyting, % |
2019 | |||
Nóvember | 472,8 | 0,13 | 2,7 |
Desember | 473,3 | 0,11 | 2,0 |
2020 | |||
Janúar | 469,8 | -0,74 | 1,7 |
Febrúar | 474,1 | 0,92 | 2,4 |
Mars | 475,2 | 0,23 | 2,1 |
Apríl | 477,5 | 0,48 | 2,2 |
Maí | 480,1 | 0,54 | 2,6 |
Júní | 482,2 | 0,44 | 2,6 |
Júlí | 482,9 | 0,15 | 3,0 |
Ágúst | 485,1 | 0,46 | 3,2 |
September | 487,0 | 0,39 | 3,5 |
Október | 489,1 | 0,43 | 3,6 |
Nóvember | 489,3 | 0,04 | 3,5 |