FRÉTT VERÐLAG 25. NÓVEMBER 2021

Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynning var leiðrétt 25. nóvember 2021 klukkan 9:30 frá upprunalegri útgáfu. Innsláttarvilla varðandi reiknaða húsleigu var leiðrétt.

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í nóvember 2021, er 513,0 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,35% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 432,5 stig og hækkar um 0,16% frá október 2021.

Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 1,1% (áhrif á vísitöluna 0,18%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,8% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,0%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2021, sem er 513,0 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2022. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 10.129 stig fyrir janúar 2022.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2020-2021
Maí 1988 = 100 Vísitala Mánaðarbreyting, % Ársbreyting, %
2020
Nóvember 489,3 0,04 3,5
Desember 490,3 0,20 3,6
2021
Janúar 490,0 -0,06 4,3
Febrúar 493,4 0,69 4,1
Mars 495,8 0,49 4,3
Apríl 499,3 0,71 4,6
Maí 501,4 0,42 4,4
Júní 502,7 0,26 4,3
Júlí 503,5 0,16 4,3
Ágúst 505,8 0,46 4,3
September 508,2 0,47 4,4
Október 511,2 0,59 4,5
Nóvember 513,0 0,35 4,8

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1200 , netfang neysluverd@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.