Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í nóvember 2023, er 605,8 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,38% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 496,6 stig og lækkar um 0,04% frá október 2023.
Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 2,1% (áhrif á vísitöluna 0,40%). Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 12,8% (-0,23%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,0% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,2%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2023, sem er 605,8 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2024.