FRÉTT VERÐLAG 26. NÓVEMBER 2026

Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í nóvember 2026, er 696,6 stig (maí 1988=100) og lækkar um 0,54% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 553,5 stig og lækkar um 0,93% frá október 2026.

Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 21,8% (áhrif á vísitöluna -0,59%) og föt og skór lækkuðu um 3,4% (-0,12%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,5% (0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,8% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 5,8%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2026, sem er 696,6 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2027.




Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.